Tags
Language
Tags
April 2024
Su Mo Tu We Th Fr Sa
31 1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 1 2 3 4

«Ekki líta undan» by Guðrún Ebba Ólafsdóttir,Elín Hirst

Posted By: Gelsomino
«Ekki líta undan» by Guðrún Ebba Ólafsdóttir,Elín Hirst

«Ekki líta undan» by Guðrún Ebba Ólafsdóttir,Elín Hirst
Íslenska | ISBN: 9789935180131 | MP3@64 kbps | 7h 51m | 215.9 MB


Ekki líta undan er saga Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur dóttur Ólafs Skúlasonar biskups … Fólk hefur spurt mig hvers vegna ég segi frá. Það spyr af hverju ég sé að sverta minningu látins manns. Oft megi satt kyrrt liggja. Ég lít svo á að ég beri ábyrgð á því að uppgjör þessa máls fari fram og tel að það muni leiða til góðs. Ekki bara fyrir mig, fjölskyldu mína og kirkjuna heldur er það líka einlæg von mín að meiri vitneskja um kynferðisofbeldi geti bjargað börnum frá því að lenda í klóm kynferðisbrotamanna. Ekki líta undan er saga Guðrúnar Ebbu dóttur Ólafs Skúlasonar biskups. Þessi einstæða bók fjallar um afleiðingarnar af því þegar satt er látið kyrrt liggja og nauðsyn þess að horfast í augu við hið liðna, hversu sárt og erfitt sem það kann að vera. Guðrún Ebba Ólafsdóttir er dóttir Ólafs Skúlasonar biskups sem var einn af helstu valdamönnum samfélagsins en hrökklaðist úr embætti eftir ásakanir um kynferðislega áreitni – sem hann neitaði alla tíð. Guðrún Ebba segir frá af hispursleysi og viðurkennir veikleika sína, skoðar líf sitt og hegðun í stóra samhenginu, hvernig kynferðisofbeldi sem faðir hennar beitti hana í æsku hefur litað allt hennar líf. Hún segir frá því hvernig hún deyfði sig með margvíslegum óhollum aðferðum en líka hvernig hún tókst að lokum á við lífsvanda sinn og hefur í framhaldinu knúið kirkjunnar menn til að horfast í augu við sinn vanda þegar slík mál eru annars vegar – hætta að líta undan.